Skema sérhæfir sig í kennslu og rannsóknum – með sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði að leiðarljósi. Skema stendur fyrir námskeiðum fyrir ungt fólk í leikjaforritun og mun stuðla að því að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og framhaldsskólum landsins auk þess að rannsaka þau áhrif sem kennsla í forritun hefur á hina ýmsu þætti þroska og námsgetu barna.
Opni háskólinn í HR og Skema undirrituðu á dögunum samstarfssamning um kennslu á námskeiðum sem verða í boði hjá Opna háskólanum.
Lesa meira